Tenglar

Nafn:

Hafdal-Hestar ehf

Farsími:

895-1118

Heimilisfang:

Glæsibær 2

Staðsetning:

Eyjafjörður

Kennitala:

660410-0820
Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 79
Gestir í gær: 36
Samtals flettingar: 125208
Samtals gestir: 35539
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 00:20:55

11.05.2012 10:13

Pallhýsi.

Við höfum ákveðið að selja pallhýsið okkar ser er af gerðinni Shadow cruser, man ekki alveg hvað það er gamalt ck 96 módel. Pallhýsið er enn í geymslu en við náum í það fljótlega eftir vorhretið og þá getum við náð betri myndum. Það passar á japanska bíla og er gott fyrir 2 fullorna og 2 börn eða 3 fullorna.
Þetta er mjög gott hús miðað við aldur og hefur verið alveg ómissandi á hestamannamótum alltaf gott að geta haft hlýtt og notalegt þegar fer að kula á nóttunni og svo kemur ísskápurinn að góðum notum, bjórinn kaldur og maturinn geymist vel. VERÐ: 450.þúsund.


11.05.2012 10:08

Fyrsta folaldið

Fyrsta folald sumarsins fæddist rétt fyrir miðnætti 9. maí. Þetta var brúnn hestur u.Dimmu-Nótt og Blæ f. Torfunesi. Þetta virðist myndarklár en eins og vanalega hefðum við viljað hryssu alveg komið nóg af stóðhestum á þessum bæ.

05.05.2012 13:48

Stóðið skoðað.

Rákum heim stóðið um daginn og tókum frá veturgömlu folana og klipptum svo hófa á gömlu hryssunum og því sem þurfti. Stóðið leit bara vel út, en ég er bara í áfalli yfir hvað þetta er að verða margt. Það er ótrúlegt hvað þessum hrossum fjölgar alltaf, við höfum líklega of gaman af því að halda hryssunum og svo eru folöldin alltaf svo falleg greyin.
 Við höfðum engan tíma til að sinna þessu síðasta ár svo nú þarf að taka á því og járna allt sem hægt er að járna og þjálfa og temja, reyna svo að selja þetta.

 Þessa mynd tók ég bara af stóðinu um daginn, það er orðinn miklu meiri fölbreytni í litum núna bæði moldótt og skjótt, svo keypti Guðrún einn brúnblesóttann.

12.04.2012 15:44

Líflandsmót





 Það var Líflandsmót um páskahelgina, býsna góð þátttaka og gott framtak hjá Líflandi. Unga fólkið skemmti sér svo vel og nú var líka keppt í fimmgangi í fyrsta sinn og tókst vel. Guðrún var heima þessa helgi og dreif sig með Gnótt í fjórgang og tölt og Vísir í fjórgang. Það gekk vel hjá henni með Vísi og þau urðu í þriðja sæti í fjórgangi.
 Guðrún keppti á móti um daginn á Hólum þar sem hún keppti við bekkjarfélagana í skólanum og þar uppskáru þær Kvika 3.sætið eftir að hafa unnið B-úrslit.
 Það er æðislegt hvað Guðrún er áhugasöm um hestamennskuna og gengur vel í skólanum og miðlar svo til okkar hér heima. Það virðist endalaust hægt að læra eitthvað nýtt í sambandi við hrossin og hestamennskuna.

06.04.2012 13:26

Páskatölt.

Í gær var létt töltmót í Topreiter höllinni á Akureyri. Valgeir dreif sig með tvö hross þau Vísir og Gnótt.
Hann varð í öðru sæti á Gnótt, hún sýndi loks smávegis af því sem hún getur, en við erum nú bara búin að hafa hrossin inni í mánuð.
Gnótt er mjög efnileg hryssa á sjötta vetur og hún hefur eins og önnur hross á bænum setið á hakanum undanfarið vegna byggingaframkvæmda.



Þarna eru Valli og Gnótt í góðri sveiflu.

24.03.2012 18:03

Nóg að gera.


                     Rikki og Vísir.

Sælt veri fólkið. Hér er allt gott að frétta, fengum fullt í tamningu og ganga þær vel. Núna er svo mikil blíða að það er eins og vorið sé komið, þetta er búið að vera býsna léttur vetur þegar maður hugsar til baka þegar þeir feðgar urðu að moka upp bygginguna oftar en einu sinni til að geta haldið áfram.
 En hér var líka tekið inn nokkur af okkar eigin hrossum þar á meðal þrjú sem eru undan Þrá minni og í hennar minningu þá tókum við inn fyrstan í þetta hús hann Þrótt sem er síðasta afkvæmi hennar. Faðir hans er Gígjar frá Auðsholtshjáleigu og vonum við að hann verði ekki eftirbátur systkyna sinna. Næstur inn var hann Vísir kallinn, Hróðssonur og Viggu frá Hvassafelli, þar á eftir kom enn einn graðhesturinn Gellir sonur Nóttar og Gamms frá Steinnesi, þessir folar eru allir brúnir en misdökkir og býsna faxprúðir líka.

Setti inn myndaalbúm.

09.03.2012 13:46

Hirðing

Þá fékk ég loksins að hleypa út og moka í hesthúsinu og þetta gekk bara vel hjá mér. Held að ég sé minna þreytt eftir þessar 18.stíur en eftir 8. í gamla hesthúsinu þegar þurfti að bera allann skítinn út úr húsinu. Rosa góð birta kveikti engin ljós þakglugginn er svo fínn það er dagsbirta inní húsinu. Svo er líka mjög gott loft engin ammoníakstybba eins og í því gamla samt vantar enn viftuna. Það er bara gaman að fara svona í hesthús bara ein og í rólegheitum, það er orðið svo langt síðan síðast.

05.03.2012 15:12

Þakkir.



 Við þökkum öllum sem lögðu leið sína til okkar um helgina og samglöddust með okkur vegna
opnunar á nýja hesthúsinu innilega fyrir komuna. Einnig þökkum við fyrir allar gjafirnar sem munu prýða ýmsa hluta hússins og hinar sem munu renna ljúflega niður að loknum vinnudegi. Við vonum að þið hafið haft jafn mikla ánægju af þessu eins og við, þetta eru mikil tímamót í okkar lífi og breyting til batnaðar í því að þjónusta ykkur áfram eins vel og við getum.

29.02.2012 13:09

LOKSINS, LOKSINS.

Í tilefni að lokið er við bygginguna hesthúsins okkar í Glæsibæ 2 ætlum við að hafa opið hús á sunnudaginn 4. Mars frá kl:13 - 17

Allir velkomnir.

Ríkarður, Kristjana, Valgeir og Guðrún.

26.02.2012 01:18

Allt að koma.


 Helgi hefur verið að skera gúmmíið niður með Rikka, það hefur gengið ágætlega en þetta er allt frekar þungt og leiðinlegt.
Eins og sést er ógeðslegur reykur sem kemur þegar gúmmíið er sagað, og lyktin eftir því,


 Hafþór er búinn að negla niður mest allt gúmmíið algjör hamhleypa með hamarinn.
 

Rikki er búinn að  setja upp vaskann á klóstinu.

 Búið að setja upp hnakkastatífin inní hnakkageymslunni.
 Hérna er mynd af gerðunum  tók þessa mynd þegar Stjáni Þorvaldar kom og gróf niður staurana milli raflínustauranna í góða veðrinu um daginn.

15.02.2012 09:59

Gúmmí

Það er búið að vera mikið að gera við að leggja gúmmi þessa dagana, fengum Haffa nágranna okkar til að koma og negla nokkra nagla og var hann snöggur að því. Nú er búið að leggja Vopnafjarðargúmmíið en þá er það blessað Kárahnjúkagúmmíið sem er ekkert svo skemmtilegt við að ná sundur og tekur sinn tíma svo allt dregst.

 Vatnið er komið á, það tókst bara vel að leggja þetta,Rikki gerði það eins og annað sem hann gerir alveg til fyrirmyndar.

 Við vorum að hugsa um að reyna að vígja núna um helgina en það gengur ekki upp, Ýmislegt eftir enn.



Svona er pípulögnin á WC inu. en eins og sést er enn eftir að setja niður WC ið og vaskann.

08.02.2012 23:00

Útiljósin komin



 Gunni kom á mánudaginn og vann aðeins í rafmagninu, það voru t.d. sett upp útiljós á hesthúsið. Helgin hafði farið öll í annað, Rikki var í Reiðmanninum og svo járnaði hann alla dagana.
  Á laugardagskvöldið var ræktunarhátíð Framfara og þá fá allir sem hafa ræktað hross sem hafa farið í 1. verðlaun á árinu viðurkenningu. Við áttum þarna eina hryssu Þræðingu, dóttir Þráar minnar og Andvara frá Ey.
 Það er ótrúlegt hvað gengur alltaf hægt á endasprettinum með þetta hús, okkur fannst við alveg að verða búin en svo vantar eitthvað og þarf að bíða eins og að snitta fáein rör tekur marga daga. Í dag voru þeir feðgar að smíða hurð fyrir WC ið og vinna í pípulögninni.





 Flottur vaskurinn


01.02.2012 17:04

Frí og flísar

Þá erum við komin heim frá Danmörku búin að taka smáfrí. Núna eru þeir félagarnir að pípuleggja og Jónas flísalagði meðan við vorum í burtu svo það er orðið mjög fínt.





21.01.2012 00:19

Læsingarnar komnar í.


Þá eru læsingarnar komnar í og þær taka sig vel út og virðast virka vel. Urðum að kaupa timbur í síðustu stíurnar og það komið niður svo stíugólfin eru búin. Pípulagningadótið kom ekki að sunnan í dag svo það verður ekki pípulagt þessa helgi held ég. En það er nóg að gera samt.

 Nú ætlum við að bregða okkur til Danaveldis í nokkra daga svo þetta stoppar aðeins, eldri sonur okkar hann Gunnar Þór er að útskrifast úr Buisness academi Arhus. 26. janúar. Já okkur langar að vera viðstödd og gerum það . Nú er hann orðinn bacelor í vefþróun og kominn með nýja vinnu með vonandi góðu fólki.


15.01.2012 16:08

Hesthúsfréttir.



Ég rölti aðeins upp í hesthús og tók nokkrar myndir. Gunni Frím, var að tengja töfluna í dag og nú er hægt að kveikja ljósin með takka það er rosa munur. En það er að frétta að strákarnir frá skógræktinni komu og söguðu síðustu staurana og voru ekki lengi að því, þeir brýndu blöðin almennilega núna. Við settum plastið í hliðin um daginn læsingarjárnin eru í galvaniseringu, þega þau koma heim eru hliðin frá. Það er búið að setja upp alla vatnsdallana og búið að ákveða hvaða efni verður notað í pípulögnina svo þetta er allt að koma.

Svona lítur stían út með gúmmíi og plastið komið í hliðið.