15.02.2012 09:59
Gúmmí
Það er búið að vera mikið að gera við að leggja gúmmi þessa dagana, fengum Haffa nágranna okkar til að koma og negla nokkra nagla og var hann snöggur að því. Nú er búið að leggja Vopnafjarðargúmmíið en þá er það blessað Kárahnjúkagúmmíið sem er ekkert svo skemmtilegt við að ná sundur og tekur sinn tíma svo allt dregst.
Vatnið er komið á, það tókst bara vel að leggja þetta,Rikki gerði það eins og annað sem hann gerir alveg til fyrirmyndar.
Við vorum að hugsa um að reyna að vígja núna um helgina en það gengur ekki upp, Ýmislegt eftir enn.

Svona er pípulögnin á WC inu. en eins og sést er enn eftir að setja niður WC ið og vaskann.
Vatnið er komið á, það tókst bara vel að leggja þetta,Rikki gerði það eins og annað sem hann gerir alveg til fyrirmyndar.
Við vorum að hugsa um að reyna að vígja núna um helgina en það gengur ekki upp, Ýmislegt eftir enn.
Svona er pípulögnin á WC inu. en eins og sést er enn eftir að setja niður WC ið og vaskann.
Skrifað af Kristjönu
08.02.2012 23:00
Útiljósin komin
Gunni kom á mánudaginn og vann aðeins í rafmagninu, það voru t.d. sett upp útiljós á hesthúsið. Helgin hafði farið öll í annað, Rikki var í Reiðmanninum og svo járnaði hann alla dagana.
Á laugardagskvöldið var ræktunarhátíð Framfara og þá fá allir sem hafa ræktað hross sem hafa farið í 1. verðlaun á árinu viðurkenningu. Við áttum þarna eina hryssu Þræðingu, dóttir Þráar minnar og Andvara frá Ey.
Það er ótrúlegt hvað gengur alltaf hægt á endasprettinum með þetta hús, okkur fannst við alveg að verða búin en svo vantar eitthvað og þarf að bíða eins og að snitta fáein rör tekur marga daga. Í dag voru þeir feðgar að smíða hurð fyrir WC ið og vinna í pípulögninni.
Flottur vaskurinn
Skrifað af Kristjönu
01.02.2012 17:04
Frí og flísar
Þá erum við komin heim frá Danmörku búin að taka smáfrí. Núna eru þeir félagarnir að pípuleggja og Jónas flísalagði meðan við vorum í burtu svo það er orðið mjög fínt.


Skrifað af Kristjönu
21.01.2012 00:19
Læsingarnar komnar í.
Þá eru læsingarnar komnar í og þær taka sig vel út og virðast virka vel. Urðum að kaupa timbur í síðustu stíurnar og það komið niður svo stíugólfin eru búin. Pípulagningadótið kom ekki að sunnan í dag svo það verður ekki pípulagt þessa helgi held ég. En það er nóg að gera samt.
Nú ætlum við að bregða okkur til Danaveldis í nokkra daga svo þetta stoppar aðeins, eldri sonur okkar hann Gunnar Þór er að útskrifast úr Buisness academi Arhus. 26. janúar. Já okkur langar að vera viðstödd og gerum það . Nú er hann orðinn bacelor í vefþróun og kominn með nýja vinnu með vonandi góðu fólki.
Skrifað af Kristjönu
15.01.2012 16:08
Hesthúsfréttir.
Ég rölti aðeins upp í hesthús og tók nokkrar myndir. Gunni Frím, var að tengja töfluna í dag og nú er hægt að kveikja ljósin með takka það er rosa munur. En það er að frétta að strákarnir frá skógræktinni komu og söguðu síðustu staurana og voru ekki lengi að því, þeir brýndu blöðin almennilega núna. Við settum plastið í hliðin um daginn læsingarjárnin eru í galvaniseringu, þega þau koma heim eru hliðin frá. Það er búið að setja upp alla vatnsdallana og búið að ákveða hvaða efni verður notað í pípulögnina svo þetta er allt að koma.
Svona lítur stían út með gúmmíi og plastið komið í hliðið.
Skrifað af Kristjönu
09.01.2012 10:27
Þrautin
þá eru jólin búin og grínið líka en á leiðslunni stendur. Ljós Höll það er semsagt lagt fyrir ljósunum sem eiga að koma í reiðhöllina sem við reisum í framtíðinni.
Skrifað af Kristjönu
07.01.2012 17:25
Rafmagnið
Gunni lét mig taka mynd af þessari leiðslu því þetta er leiðslan inn í framtíðina hjá Hafdal-Hestum. Gaman að hafa smá gestaþraut um hvað stendur þarna og hvað það þýðir.
Gunni kom með rafmagnstöfluna í dag og svo kemur hann aftur á morgun og klárar að tengja hana vonandi.
Rikki er að útrétta í sambandi við pípulögn og svo er verið að byrja að setja gúmmíið niður. Svo er Rikki að járna líka svona ef það er dauð stund hjá honum.
Axel kom og setti net í stallana, og þeir feðgar komu upp slatta af vatnsdöllum
Skrifað af Kristjönu
29.12.2011 14:01
Ljós og járnaverk.
Hér er allt á fullu við að setja upp járnaverkið og það kemur vel út. Eins og allir vita er nú hátíð ljós og friðar og það er eins hjá okkur sem öðrum, Það var því mikil ánægja þegar Gunni Frím kom í morgun og sagði VERÐI LJÓS, og þvílíkur munur vá maður.
Skrifað af Kristjönu
28.12.2011 15:54
Hvert fóru merarnar?
Við héldum undir nokkra mjög spennandi 1. verðlauna hesta í sumar auk þess að halda aðeins undir Kraum okkar. Kraumur er undan Kolfinnu og Kiljan frá Steinnesi. Auk þess að halda okkar merum þá fengum við lánaða Slaufu frá Akureyri en hún er 1. verðlauna Baldursdóttir. Það verður spennandi að sjá folöldin í vor.
|
|
fór undir | Fróða frá Staðartungu |
|
Dimma-Nótt frá Ytri-Skjaldarvík
|
fór undir | Blæ frá Torfunesi |
|
|
fór undir | Klett frá Hvammi |
|
Fold frá Haga
|
fór undir |
Klett frá Hvammi
|
|
Slaufa frá Akureyri
|
fór undir | Eld frá Torfunesi |
|
Þraut frá Glæsibæ 2
|
fór undir | Kraum frá Glæsibæ 2 |
Skrifað af Rikka
21.12.2011 15:49
Allt að gerast.
Þá komu loksins strákarnir með timbursögina aftur og söguðu nokkra tíma, því miður gekk það ekki eins vel og vonast hafði verið til svo enn er aðeins eftir.
Við urðum fyrir því happi að það var ferð frá Vopnafirði í nótt og gúmmíið er komið heim á mel.
Gunni Frím. kom og sagði fyrir hvernig á að leggja rafmagnið og pantaði efni í það sem Rikki er búinn að sækja svo það er hægt að fara að hengja það upp, verður æðislegt að fá gott ljós og hita.
Það er búið að ná í mikið af efni úr galvaníseringu sem þarf að bora fyrir og festa upp.
Þannig að það fer að koma mynd á þetta fljótlega.
Við urðum fyrir því happi að það var ferð frá Vopnafirði í nótt og gúmmíið er komið heim á mel.
Gunni Frím. kom og sagði fyrir hvernig á að leggja rafmagnið og pantaði efni í það sem Rikki er búinn að sækja svo það er hægt að fara að hengja það upp, verður æðislegt að fá gott ljós og hita.
Það er búið að ná í mikið af efni úr galvaníseringu sem þarf að bora fyrir og festa upp.
Þannig að það fer að koma mynd á þetta fljótlega.
Skrifað af Rikka
21.12.2011 10:54
La??asveinninn.
Jólin nálgast en eins og flestir vita þá fara jólasveinarnir á kreik. Hér í Glæsibæ eru ekki lengur börn til að gleðja og því eru þeir flestir hættir að líta við. En einn er sveinninn sem veit að það þarf að gleðja bóndann hver jól með brjóstbirtu og yl en hann laumar yfirleitt flösku í kaffistofuna í hesthúsinu. En nú er von á veislu svo magnið var svo mikið sem hann bar núna karlgreyið að hann kom hér heim og fékk sér kaffitár og smákökur hjá konunni sem náði mynd af sendisveininum.
Skrifað af Rikka
17.12.2011 00:37
Stallar og járnaverk
Hérna er alltaf eitthvað að gerast og við förum að sjá fyrir endann á sumu. Rikki hefur verið að smíða milligerðin og járnaverkið fyrir stóðhestastíurnar, nú er þetta allt komið í galvaniseringu. Þá gat hann farið að gera það síðasta en það eru stallarnir eð réttara sagt teinarnir sem hann ætlar að hafa fyrir stalla, en svo lætur hann net á milli svo þetta verður eins og fastir netpokar gaman að sjá hvernig þetta virkar. Við erum búin að fá slatta heim sem búið er að galvanisera svo það er hægt að fara að setja það upp en vantar aðeins fleiri tíma í sólarhringinn því það er svo margt að gera.
Járningar á sunnudaginn, rafvirkinn á mánudaginn, timbursögun á þriðjudaginn svo fer píparinn að koma, þetta er fín áætlun ef hún stenst.
Ef þetta klárast fyrir jól þá erum við í góðum málum. Það hefur tekið smá tíma líka að ná hrossunum heim úr afréttinni þeir feðgar og fleiri eru búnir að kafa býsna snjó og brasa við það.
Guðrún kom heim frá Hólum í dag er komin í jólafríið, alltaf gott að fá hana heim, mikið spjallað og frísklegar umræður um tamningar og ræktun. Fann þessa mynd af þeim Guðrúnu og Valgeir með fyrstu ræktunina Orku Álfsdóttur og Nóttar. Þessi hryssa er með hæðsta kynbótamatið af hrossunum á búinu, svo þau byrja vel.

Járningar á sunnudaginn, rafvirkinn á mánudaginn, timbursögun á þriðjudaginn svo fer píparinn að koma, þetta er fín áætlun ef hún stenst.
Ef þetta klárast fyrir jól þá erum við í góðum málum. Það hefur tekið smá tíma líka að ná hrossunum heim úr afréttinni þeir feðgar og fleiri eru búnir að kafa býsna snjó og brasa við það.
Guðrún kom heim frá Hólum í dag er komin í jólafríið, alltaf gott að fá hana heim, mikið spjallað og frísklegar umræður um tamningar og ræktun. Fann þessa mynd af þeim Guðrúnu og Valgeir með fyrstu ræktunina Orku Álfsdóttur og Nóttar. Þessi hryssa er með hæðsta kynbótamatið af hrossunum á búinu, svo þau byrja vel.
Skrifað af Kristjönu
06.12.2011 19:51
Leikur
Við fengum sendar myndir af honum Leik frá Glæsibæ 2. Hann var seldur í fyrra ótaminn en var taminn af nýjum eiganda. Það gengur vel með hann og er eigandinn ánægður með klárinn en hann er einungis fjögurra vetra að fara á fimmta vetur. Leikur er undan Þraut frá Glæsibæ 2 og Sámi frá Litlu-Brekku.


Skrifað af Rikka
29.11.2011 13:15
Smá fréttir
Ákvað að setja smáfréttir, það er búið að setja milliveggi og mála þá, láta timburgólf i átta stíur, erum að bíða eftir að verði sagað meira svo við getum klárað það. Núna eru þeir feðgar að brasa í járnaverkinu koma hliðunum á lamir, smíða milli stía og senda þetta svo í galvaniseringu.
Þarna sést hvernig það er þegar það er snjór á þakglugganum, þá vantar birtuna.
Skrifað af Kristjönu
10.11.2011 12:48
Timbursögun.
Það er verið að saga timbur hjá okkur ekki ræktuðum við það sjálf heldur eru þetta raflínustaurarnir sem höfðu plagað okkur mörg ár hér í túninu við slátt.
Rikki frétti að þeir hjá skógræktinni ættu bandsög sem gæti sagað staurana niður í borð og fannst það góð nýting og líka ódýrara, svo er þetta líka frábært efni. Þetta ætlum við að nota í botninn á stíunum og svo gúmmí ofan á það.
Skrifað af Kristjönu